Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 24. september 2020 17:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thiago ekki í hóp og Jota byrjar á bekknum gegn Lincoln
Þrír leikir í enska deildabikarnum
Thiago er ekki í hóp hjá Liverpool.
Thiago er ekki í hóp hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Það eru þrír leikir í enska deildabikarnum í kvöld. Tvö bestu lið ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð, Liverpool og Manchester City, verða í eldlínunni.

Liverpool heimsækir Lincoln úr C-deild og Man City tekur á móti Bournemouth, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Thiago Alcantara er ekki í leikmannahópi Liverpool og Diogo Jota byrjar á bekknum. Gríski vinstri bakvörðurinn Kostas Tsimikas byrjar í fyrsta sinn fyrir Liverpool.

Hjá Man City byrjar Ferran Torres, sem kom frá Valencia, en Guardiola er annars með frekar óreynt lið. Kyle Walker er fyrirliði City.

Hér að neðan má sjá byrjunarliðin hjá úrvalsdeildarfélögunum í leikjum kvöldsins.

Byrjunarlið Aston Villa: Steer, Guilbert, Elmohamady, Hause, Taylor, Lansbury, Nakamba, Ramsey, Traore, Davis, El Ghazi.
(Varamenn: Kalinic, Mings, Targett, Hourihane, McGinn, Trezeguet, Watkins)

Byrjunarlið Liverpool: Adrian, N. Williams, R. Williams, Van Dijk, Tsimikas, Grujic, Jones, Elliott, Shaqiri, Minamino, Origi.
(Varamenn: Kelleher, Fabinho, Keita, Jota, Wilson, Alexander-Arnold, Van der Berg)

Byrjunarlið Man City: Steffen, Walker (C), Garcia, Harwood-Bellis, Rodrigo, Doyle, Foden, Bernabe, Torres, Mahrez, Delap.
(Varamenn: Carson, Ake, Sterling, De Bruyne, Mendy, Nmecha, Palmer)

Leikir kvöldsins:
18:00 Bristol City - Aston Villa
18:45 Man City - Bournemouth
18:45 Lincoln City - Liverpool (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner