Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 24. september 2020 10:21
Elvar Geir Magnússon
Þrjá og hálfan sólarhring á ferðalagi á átta dögum
Úr leik hjá Leikni Fáskrúðsfirði.
Úr leik hjá Leikni Fáskrúðsfirði.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Haukur Gunnarsson
„Eins og allur almenningur veit ferðast Leiknir F. mest allra félaga í landsdeildum hérlendis. Við höfðum heppnina heldur ekki með okkur þegar leikjaplani Lengjudeildarinnar var breytt vegna Covid."

Með þessum orðum hefst pistill á heimasíðu Leiknis frá Fáskrúðsfirði sem leikur í Lengjudeildinni. Þar er farið yfir rosaleg ferðalög liðsins á átta dögum.

Laugardaginn 12. september léku þeir gegn nöfnum sínum Leikni í Breiðholtinu og náðu að fljúga fram og til baka á einum degi. Reykjavíkur Leiknir vann þann leik 2-1.

Á miðvikudaginn í síðustu viku áttu Fáskrúðsfirðingar að spila við ÍBV í Vestmannaeyjum en vegna slæmrar veðurspár var leiknum flýtt um sólahring. Á mánudegi var ákveðið samdægurs að leggja af stað í ferðalagið og um nóttina var gist á Vík í Mýrdal.

„Á þriðjudegi var siglt til Eyja og sótt eitt stig sem okkur vantaði reyndar sárlega (lokatölur 0-0). Síðan siglt í land og keyrt austur að mestu á löglegum hraða. Menn komnir heim um tvöleytið um nóttina," segir í pistlinum.

„Síðastur í þríleiknum var leikur við Vestra á Ísafirði sl sunnudag, 20. sept. Planið var að keyra á Akureyri á sunnudagsmorgni og taka leiguflug þaðan, fram og til baka samdægurs og keyra heim um kvöldið. Þetta hefði ekki átt að taka nema 17 klst. Skólastrákarnir okkar í Rvík áttu að fljúga með okkar ástkæra Air Iceland Connect vestur og keyra bílaleigubíl í bæinn eftir leik."

„Enn setti veðrið strik í reikning og erum við þakklátir Samúel hjá Vestra fyrir aðvara okkur í tíma. Á föstudag var ljóst að allt flug á Ísafjörð þessa helgi væri í besta falli hæpið. Niðurstaðan varð því sú að liðið flaug til Rvíkur á laugardagsmorgni og síðan var keyrt af vestur, tæpir 450 km. Gist á Hótel Ísafirði og snæddur kvöldverður í Edinborgarhúsinu sem óhætt er að mæla með. Við lékum síðan við Vestra kl 11 morguninn eftir, við óboðlegar aðstæður. Völlurinn á floti eftir margra daga rigningar og sagði lítið þó Vestramenn ynnu langt fram á kvöld fyrir leik og byrjuð eldsnemma á leikdegi að skafa af vellinum vatn. Meðal annars vegna þess að ómögulegt er að skafa vatn af velli fyrir en það er fallið af himni ofan, en algjört úrhelli var þegar á leikinn leið. Hitastigið var 0° og allir þeirri stund fegnastir þegar góður dómari leiksins blés lokaflautið."

„Athugið að það var ekki um neitt annað að ræða en spila leikinn, Við þegar búnir að eyða tveimur dögum í ferðalag og enginn annar nothæfur leikdagur í augsýn. Það er komið haust og næsta knattspyrnuhöll á Akranesi. Reikna ekki með að forráðamenn Vestra hefðu verið spenntir fyrir að rúlla með okkur þangað til að spila við boðlegar aðstæður. Það sem úrslitum réð í leiknum var vestanmenn mættu betur skóaðir til leiks. Sjóaðir mýrarboltamenn á tveggja ca tommu skrúftökkum var það sem gilti á Torfnespolli þennan haustdag."

Vestri vann leikinn 2-0 en Leiknir Fáskrúðsfirði var á ferðalagi (að heiman) í 87 klst á þessum átta sólarhringum eða meira en þrjá og hálfan sólarhring. Fáskrúðsfirðingar eru í harðri fallbaráttu en þeir eiga leik gegn Víkingi Ólafsvík á heimavelli á laugardag.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner