Tveir leikir hefjast klukkan 13:00 í 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en það er Lundúnarslagur þar sem West Ham og Tottenham Hotspur eigast við á meðan Brentford tekur á móti Leicester.
Brentford gerir enga breytingu frá síðasta leik á meðan Jamie Vardy kemur aftur í fremstu víglínu hjá Leicester. Patson Daka, sem skoraði fjögur mörk í Evrópudeildinni á dögunum, fer á bekkinn.
David Moyes gerir þá enga breytingu á liði West Ham sem vann Everton 1-0 síðustu helgi. Tottenham var með varaliðið sitt í Sambandsdeildinni á dögunum en er komið aftur með sitt gamla byrjunarlið sem spilaði við Newcastle síðustu helgi.
West Ham: Fabianski; Johnson, Zouma, Ogbonna, Cresswell; Soucek, Rice; Bowen, Benrahma, Fornals; Antonio.
Tottenham: Lloris; Emerson Royal, Romero, Dier, Reguilón; Højbjerg, Skipp; Lucas Moura, Ndombele, Son; Kane.
Brentford: Raya, Pinnock, Jansson, Zanka, Canos, Norgaard, Jensen, Onyeka, Henry, Mbeumo, Toney
Leicester: Schmeichel, Soyuncu, Evans, Amartey, Pereira, Soumare, Tielemans, Castagne, Maddison, Vardy, Iheanacho
Athugasemdir