Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 24. október 2021 15:59
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Mitrovic gerði tvö í stórsigri Fulham
Fulham er komið upp í annað sæti ensku B-deildarinnar með 4-0 sigri á Nottingham Forest í dag. Aleksandar Mitrovic gerði tvö mörk fyrir gestina.

Fulham komst yfir á 8. mínútu eftir sjálfsmark Djed Spence áður en Mitrovic gerði annað markið á 58. mínútu. Neeskens Kebano gerði þriðja markið þremur mínútum síðar og gulltryggði Mitrovic sigurinn með marki úr vítaspyrnu á 67. mínútu.

Fulham er í 2. sæti með 29 stig, fimm stigum á eftir toppliði Bournemouth.

Sheffield United vann þá Barnsley, 3-2. Lys Mousset gerði fyrstu tvö mörkin á þriggja mínútuna kafla í upphafi síðari hálfleiks áður en Ben Osborn gerði þriðja markið tæpum tuttugu mínútum fyrir leikslok. Devante Cole, sonur Andy Cole, minnkaði muninn fyrir Barnsley áður en Aaron Leya Iseka náði í annað markið fimm mínútum síðar.

Lokatölur 3-2 fyrir Sheffield United sem er í 14. sæti með 18 stig.

Úrslit og markaskorarar:

Barnsley 2 - 3 Sheffield Utd
0-1 Lys Mousset ('51 )
0-2 Lys Mousset ('54 )
0-3 Ben Osborn ('72 )
1-3 Devante Cole ('78 )
2-3 Aaron Leya Iseka ('83 )

Nott. Forest 0 - 4 Fulham
0-1 Djed Spence ('8 , sjálfsmark)
0-2 Aleksandar Mitrovic ('58 )
0-3 Neeskens Kebano ('61 )
0-4 Aleksandar Mitrovic ('67 , víti)
Athugasemdir
banner