Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 24. nóvember 2022 20:55
Ívan Guðjón Baldursson
HM: Brassar sannfærandi gegn Serbum
Mynd: EPA
Mynd: EPA

Brasilía 2 - 0 Serbía
1-0 Richarlison ('62)
2-0 Richarlison ('73)


Richarlison skoraði bæði mörk leiksins er Brasilía tók Serbíu í kennslustund í fyrstu umferð heimsmeistaramótsins í Katar.

Staðan var markalaus fyrsta klukkutíma leiksins en Brasilíumenn fengu mikið af góðum færum á meðan Serbarnir ógnuðu sárasjaldan og virtust vera að spila til að ná í jafntefli.

Richarlison var í byrjunarliði Brasilíu og skoraði fyrra mark leiksins á 62. mínútu þegar hann fylgdi skoti frá Vinicius Jr. eftir með marki af stuttu færi. Ellefu mínútum síðar gerði hann það sem er mark mótsins til þessa og innsiglaði sigur Brasilíu.

Serbar ógnuðu aldrei og geta prísað sig sæla að hafa ekki tapað stærra heldur en 2-0.

Brasilía er því í toppsæti G-riðils á markatölu, með Sviss í öðru sæti og Kamerún þriðja.

Sjáðu stórkostlegt seinna mark Richarlison gegn Serbum


Athugasemdir
banner
banner
banner