Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. janúar 2021 10:40
Magnús Már Einarsson
Levy tekur ákvörðun um skipti Alli til PSG
Á förum?
Á förum?
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, þjálfari PSG, vonast ennþá til að fá Dele Alli miðjumann Tottenham á láni áður en félagaskipaglugginn lokar eftir viku.

Tottenham hefur nú þegar hafnað þremur lánstilboðum frá PSG en frönsku meistararnir hafa ekki gefist upp.

Samkvæmt heimildum The Athletic vill Alli sjálfur fara til PSG og spila á ný undir stjórn Pochettino.

Alli er ekki inn í áætlunum Jose Mourinho og hefur lítið spilað að undanförnu.

Mourinho ku vera tilbúinn að leyfa Alli að fara á láni en ákvörðunin er nú í höndum Daniel Levy, formanns Tottenham. Ekki er ólíklegt að viðræður muni standa yfir fram á lokadag gluggans eftir viku.
Athugasemdir
banner
banner