Fotbolti.net
25.04.19 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Túfa: Þú byggir ekki hús á einum degi

Auglýsing
Túfa: Þú byggir ekki hús á einum degi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Það hlakkar öllum til. Við í Grindavík erum klár í slaginn," sagði Túfa, þjálfari Grindavíkur, í viðtali við Fótbolta.net í gær.

Grindavíkur hefur leik í Pepsi Max-deildinni á laugardaginn þegar liðið fær Breiðablik í heimsókn.

Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum í Pepsi Max-deildinni!
„Það eru allir klárir og allir heilir. Það er góð samstaða og við hlökkum til að byrja á okkar heimavelli."

Túfa tók við Grindavík eftir síðasta tímabil. Hann skipti um starf við Óla Stefán Flóventsson. Óli fór norður og tók við KA á meðan Túfa tók við Grindavík.

„Það er búið að vera mikill stígandi í þessu hjá okkur. Það hafa orðið miklar breytingar hjá félaginu. Ný stjórn, nýtt þjálfarateymi, nýr vallarstjóri. Gríðarlegar mannabreytingar á liðinu. Þú byggir ekki hús á einum degi, en ég er bjartsýnn og hef mikla trú á fólkinu sem ég er að vinna með."

„Ég er mjög ánægður með nýju leikmennina. Þeir hafa fallið vel inn í hópinn og hafa verið fljótir að aðlagasta samfélaginu. Ég er mjög ánægður með hópinn."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.

Pepsi Max-deildin:

föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)

laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik (Grindavíkurvöllur)
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsung völlurinn)

Smelltu hér til að hlusta á upphitunarþátt deildarinnar
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.