Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. apríl 2021 17:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Verðum að halda áfram í þessum takti svo við getum unnið fleiri titla"
Aymeric Laporte.
Aymeric Laporte.
Mynd: EPA
„Þetta er mjög sérstakt fyrir okkur eftir að við töpuðum í FA-bikarnum," sagði Aymeric Laporte, varnarmaður Manchester City, eftir sigur á Tottenham í enska deildabikarnum í dag.

Laporte kom inn í liðið hjá Man City í dag þar sem John Stones var í leikbanni. Franski miðvörðurinn reyndist hetja City.

„Við höfum verið frábærir síðustu tvo mánuði og verðum að halda áfram í þessum takti svo við getum unnið fleiri titla."

City er á góðri leið með að vinna ensku úrvalsdeildina og er í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

„Þetta var erfitt í dag, þeir eru gott lið og það er aldrei auðvelt að spila gegn þeim. Við gerðum mjög vel í dag og það er frábært að fá stuðningsmennina aftur á völlinn. Ég vild að það hefðu verið enn fleiri á vellinum en það var gott að fá stuðning þeirra."
Athugasemdir
banner
banner