Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. maí 2022 08:36
Elvar Geir Magnússon
Grealish heldur áfram að fagna titlinum og nú á Ibiza
Grealish er að skemmta sér vel.
Grealish er að skemmta sér vel.
Mynd: Getty Images
Jack Grealish vann sinn fyrsta stóra titil á ferlinum á sunnudaginn þegar Manchester City tryggði sér Englandsmeistaratitilinn.

Grealish var hrókur alls fagnaðar á mánudag þegar haldinn var meistarafögnuður í miðborg Manchester. Grealish mætti á sviðið með tvo drykki í höndunum og naut sín vel.

Hann flaug síðan beint til Ibiza þar sem hann hélt áfram að fagna. Næturlífskóngurinn Wayne Lineker, sem er bróðir Gary Lineker, birti mynd af sér með Grealish á samfélagsmiðlum.

Wayne á O Beach Ibiza skemmtisvæðið og var Grealish mættur fyrir framan sundlaugina þar.


Athugasemdir
banner
banner