Í dag fara fram fimm leikir í 4.deildinni en spilað er í A, B, C og D riðli. Í A riðlinum mætast KFS og Uppsveitir og síðan eru tveir leikir í B riðli.
Í C riðli má búast við hörkuleik þegar Hamar fer norður til Hrafnagils og mætir Samherjum. Samherjar hafa verið á góðu skriði undanfarið og getur liðið blandað sér almennilega í toppbaráttuna með sigri í dag.
Í D riðli mætast síðan Hörður og KB á Ísafirði og verður sá leikur í beinni á Youtube fyrir áhugasama.
Einn leikur er á dagskrá í Lengjudeild kvenna en þar mætast Völsungur og Grótta. Einnig er leikið í 2.deildinni en alla leiki dagsins má sjá hér fyrir neðan.
laugardagur 25. júlí
Lengjudeild kvenna
14:00 Völsungur-Grótta (Vodafonevöllurinn Húsavík)
2. deild kvenna
14:00 Grindavík-Sindri (Grindavíkurvöllur)
14:00 Hamrarnir-Álftanes (KA-völlur)
4. deild karla - A-riðill
14:00 KFS-Uppsveitir (Týsvöllur)
4. deild karla - B-riðill
14:00 Snæfell-Björninn (Stykkishólmsvöllur)
17:00 Kormákur/Hvöt-KFR (Hvammstangavöllur)
4. deild karla - C-riðill
16:00 Samherjar-Hamar (Hrafnagilsvöllur)
4. deild karla - D-riðill
16:00 Hörður Í.-KB (Olísvöllurinn)
Athugasemdir