mán 25.júl 2022 16:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|

Seldur til Svíþjóðar eftir að hafa blómstrað í bakverðinum - „Mjög erfið ákvörðun"
Óli Valur Ómarsson var fyrr í þessum mánuði seldur frá Stjörnunni til sænska félagsins Sirius. Hann er nítján ára gamall hægri bakvörður, uppalinn á Álftanesi en skipti í Stjörnuna þegar komið var að 4. flokki.
Óli Valur fékk sitt fyrsta tækifæri í meistaraflokki sumarið 2019 og fór leikjunum fjölgandi næstu tvö ár. Þegar haldið var inn í tímabilið 2022 var Óli í algjöru lykilhlutverki og var í byrjunarliðinu í fyrstu tólf leikjum tímabilsins. Fimm leikmenn sem fæddir eru 2003 eða 2004 hafa leikið hlutverk í liði Stjörnunnar í sumar og er Óli Valur einn þeirra. Fótbolti.net ræddi við leikmanninn og spurði hann út í skiptin og ýmislegt fleira.
Auðvitað er alltaf smá stress en gott að fá fyrsta leikinn strax
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það skapar ákveðna stemningu þegar að fólkið þekkir leikmennina
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Erfið ákvörðun að fara frá Stjörnunni
Varstu staðráðinn í því að hoppa á tilboðið eða var líka að toga að klára tímabilið með Stjörnunni?
„Það var mjög erfið ákvörðun, ég hafði alltaf hugsað mér að klára tímabilið með Stjörnunni. En að lokum ákvað ég að stökkva á boðið."
Hann segir að hann hafi alltaf verið með það í huganum að komast út í atvinnumennsku og það hafði verið markmið í langan tíma.
Óli Valur á að baki fimmtán leiki með U16 - U19 landsliðunum en í júní var hann valinn í U21 landsliðið og stóð sig vel í leikjunum tveimur sem hann spilaði. „Ég veit ekki hvort að leikirnir með U21 höfðu áhrif á ákvörðun Sirius."
Hentar vel
Hann er ánægður með leikstílinn sem Stjarnan spilar. Þar fékk hann mörg tækifæri til að taka þátt í sóknarleiknum. Hann hafði lagðt upp fimm mörk og skorað eitt í upphafi móts.
„Þessi leikstíll sem Stjarnan spilar leyfir mér að fara hærra á völlinn, opnar marga möguleika sóknarlega fyrir bakverðina okkar og það hentar mínum leik vel."
Bauð Óla Val velkominn
Vissiru eitthvað um Sirius þegar þú heyrðir af áhuga félagsins?
„Ég heyrði fyrst um Sirius þegar að Aron Bjarnason fór til þeirra. Það sem ég veit er að félagið er mjög gott í að gefa mönnum sénsa og hjálpa leikmönnum að bæta sig og þróast sem leikmenn."
Ræddiru eitthvað við Aron áður en þú ákvaðst að taka skrefið?
„Já, Aron heyrði aðeins í mér áður en að ég kom út og bauð mig bara velkominn í félagið."
Sirius er að spila 3-4-3 með vængbakverði og Aron hefur verið að spila í hægri vængbakverði. Verðið þið í samkeppni um stöðuna?
„Í fyrsta leiknum kom ég inná sem vinstri vængbakvörður, en það mun bara koma í ljós."
Markmiðið að komast í liðið sem fyrst
Óli Valur hefur komið við sögu í tveimur fyrstu leikjunum eftir að hann gekk í raðir Sirius. Í leik númer tvö kom hann inná fyrir Aron þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka. Hvernig var að fá mínútur strax í fyrsta leik eftir að þú komst út?
„Það var virkilega gott að fá að koma inná. Auðvitað er alltaf smá stress en gott að fá fyrsta leikinn strax."
Hvernig hafa móttökurnar verið og hefur eitthvað verið rætt um að þú eigir strax að vera nálægt byrjunarliðinu?
„Þjálfarinn hefur tekið vel á móti mér. Ég kem inná í fyrsta leik, þannig að markmiðið er að komast inn í liðið sem fyrst."
Settur í bakvörðinn og fékk traustið
Hefuru alltaf verið hægri bakvörður?
„Ég byrjaði aðeins á kantinum í fyrra, svo meiddist Heiðar Ægis og þá var ég settur í bakvörðinn. En annars, upp alla yngri flokkana, spilaði ég á kantinum."
Aftur að Stjörnunni. Hvernig er að fá þetta traust að spila stórt hlutverk á stærsta sviðinu og hvernig er að spila með félögunum úr yngri flokkunum?
„Það er geggjað, alla langar að spila. Þannig það að fá traustið til að taka að sér stórt hlutverk er virkilega skemmtilegt. Við ungu strákarnir höfum spilað mjög lengi saman, þannig að við kunnum vel á hvern annan og það hjálpar okkur mikið inni á vellinum."
Heyriði mikið frá öðrum talað um hvað það er gaman að sjá marga unga og uppalda leikmenn í liðinu?
„Bara eitthvað aðeins, það skapar ákveðna stemningu þegar að fólkið þekkir leikmennina."
Stjarnan var meistari í 2. flokki í fyrra og þá varð aldursflokkur Óla Vals Gothia cup meistari árið 2019. Óli Valur spilaði með 2. flokki í fyrra þegar hann hafði ekki verið í byrjunarliðinu í meistaraflokki í leiknum áðan.
Að lokum, þú svaraðir spurningum í 'hinni hliðinni' í fyrra. Þar sagðiru frá því að gælunafnið þitt væri Pun. Er einhver ástæða fyrir því gælunafni?
„Það er stytting á punisher. Jói Lax kom með það nafn þegar ég var fyrst að byrja að æfa með meistaraflokki," sagði refsarinn að lokum.
Athugasemdir