Fotbolti.net
25.09.21 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mendy tekinn úr FIFA 22

Mendy tekinn úr FIFA 22
Canon

Mynd: Getty Images

Nýverið var FIFA 22 tölvuleikurinn gefinn út, en um er að ræða einn vinsælasta tölvuleik í heimi.
Þetta er fótboltatölvuleikur eru gífurlega fótboltamenn í leiknum.

Benjamin Mendy var upphaflega í leiknum en núna er búið að taka hann úr honum. Það er búið að eyða honum úr leiknum.

Það er skiljanlegt í ljósi þess sem er í gangi hjá þessum vinstri bakverði Manchester City. Í síðasta mánuði var greint frá því að Mendy hefði verið ákærður af lögreglunni fyrir nauðganir og kynferðislegt ofbeldi. Um er að ræða fjórar mismunandi ákærur um nauðgun.

Hann er ákærður fyrir þrjár nauðganir í október 2020, kynferðislegt ofbeldi í janúar á þessu ári og nauðgun í síðasta mánuði. Mál hans stendur yfir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.