Enska félagið Arsenal hefur engan áhuga á því að fá Dusan Vlahovic frá Juventus. Þetta segir ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano.
Arsenal var á eftir serbneska framherjanum á síðasta ári er hann var á mála hjá Fiorentina en hann valdi það að ganga í raðir Juventus eftir að hafa raðið inn mörkum í Flórens.
Vlahovic, sem er 22 ára gamall, hefur skorað 4 mörk í 8 leikjum með Juventus á þessari leiktíð, en hann er nú aftur orðaður við Arsenal.
Félagið ætlaði sér þá að reyna aftur við hann í janúar en Fabrizio Romano, einn helsti sérfræðingurinn í félagaskiptum, segir þetta ekki rétt.
Hann segir Arsenal ekki hafa áhuga á Vlahovic og að þá hafi leikmaðurinn engan áhuga á að ganga í raðir enska félagsins.
Vlahovic heldur því líklega kyrru fyrir hjá Juventus, sem hefur verið í miklu basli í byrjun leiktíðar.
Athugasemdir