Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 25. nóvember 2019 12:53
Elvar Geir Magnússon
Arteta tilbúinn að hlusta á Arsenal
Mikel Arteta.
Mikel Arteta.
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta er sagður tilbúinn að ræða við Arsenal um að taka við sem knattspyrnustjóri liðsins. Þetta fullyrðir Daily Mirror.

Sæti Unai Emery er orðið ansi heitt en Arteta kom til greina í starfið áður en Emery var ráðinn 2018.

Arteta lék með Arsenal frá 2011 til 2016 en er í dag aðstoðarmaður Pep Guardiola hjá Manchester City.

Arsenal er án sigurs í síðustu sex leikjum og pressan á Emery hefur aukist gríðarlega.
Athugasemdir
banner
banner