Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. nóvember 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Bruce snýr aftur á Villa Park - Síðast var kálhaus kastað að honum
Mynd: Getty Images
Steve Bruce, stjóri Newcastle, kemur aftur á sinn gamla heimavöll í kvöld þegar liðið heimsækir Aston Villa.

Bruce var rekinn frá Aston Villa í október í fyrra eftir erfiða byrjun í Championship deildinni. Í síðasta leik hans á Villa Park reyndi stuðningsmaður liðsins að henda kálhaus í hann.

„Þetta var eitt það óheiðarlegasta sem ég hef lent í á ferlinum. Ég hélt fyrst að þetta væri bolti, þetta var eitthvað stórt," sagði Bruce.

„Hvernig stuðningsmaðurinn gat komið með þetta inn á völlinn veit ég ekki."

„Þetta fór ekki langt frá mér. Stuðningsmenn geta hent ýmsum hlutum, en kálhaus? Ég var rekinn daginn eftir svo ég hafði engan tíma til að vera reiður yfir þessu."

Athugasemdir
banner
banner
banner