Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. febrúar 2021 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Diljá Ýr á reynslu hjá Häcken
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Diljá Ýr Zomers, leikmaður Vals í Pepsi Max-deildinni, æfir þessa dagana með BK Häcken FF í Svíþjóð, hún er þar á reynslu.

Þetta staðfesti hún í samtali við Fótbolta.net í dag.

Häcken er ríkjandi meistari í Svíþjóð þar sem Kopparsberg/Gautaborg var í fjárhagsvandræðum en Häcken steig inn í og tók yfir starfsemi kvennaliðsins.

Diljá er nítján ára og gekk í raðir Vals frá Stjörnunni fyrir síðustu leiktíð. Hún var fram til ársins 2019 hjá FH, uppeldisfélagi sínu.

Hún var á dögunum valin í fyrsta æfingahóp landsliðsþjálfarans Þorsteins Halldórssonar.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Diljá Ýr Zomers
Athugasemdir
banner
banner