Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   sun 26. maí 2019 21:53
Arnar Daði Arnarsson
Helgi Sig: Erfitt að skrapa saman í hóp
Helgi Sigurðsson.
Helgi Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir og FH gerðu 2-2 jafntefli í 6. umferð Pepsi Max-deildarinnar í Árbænum í kvöld.

Helgi Sigurðsson þjálfari Fylkis var svekktur að hafa ekki náð í sigur en Fylkir komst tvívegis yfir í leiknum.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  2 FH

„Það mætti segja að þetta væru tvö töpuð stig því við komumst tvisvar yfir í leiknum og við eigum að vera það rútíneraðir og við eigum ekki að láta það gerast að fá á okkur mark skömmu eftir að við komumst yfir. Það var heppnis stimpill yfir seinni markinu hjá FH en ég er mjög stoltur af strákunum."

„Það hefur verið mikið af meiðslum og erfitt að skrapa saman í hóp og þetta hefur reynt mikið á hópinn. Við höfum hinsvegar þétt raðirnar og strákarnir eiga hrós skilið," sagði Helgi en til að mynda kom Oddur Ingi Guðmundsson inná í leiknum en hann hefur ekkert æft með Fylki frá síðasta tímabili og þá kom Andri Jónsson inn í fyrsta sinn í sumar eftir að hafa verið að glíma við meiðsli.

„Við vorum að spila gegn mjög góðu liði FH-inga og við vissum það að ef við værum ekki með nægilega góða pressu þá myndu þeir spila sig létt útúr því. Við náðum að koma þeim oft í vandræði. Með smá klókindum hefðum við getað skorað þriðja markið en auðvitað eru menn orðnir þreyttir og þá verða ákvarðirnar á síðasta þriðjungnum ekki nægilega góðar."

Sam Hewson var ekki með Fylki í kvöld vegna meiðsla.

„Hann er meiddur og ég veit ekkert hvenær hann kemur til baka. Hvort sem það er stutt eða langt en vonandi verður hann klár í næsta leik," sagði Helgi.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner