Ítalski framherjinn Mario Balotelli heldur áfram að vera til vandræða en hann mætti ekki á æfingu Brescia í dag.
Þessi 29 ára gamli framherji mætti til æfinga í síðustu viku en æfði þá einn og var í umsjón þjálfara úr varaliðinu.
Hann æfði þá á æfingasvæði sem unglingaleikmenn Brescia æfa en var þó hvergi sjáanlegur í dag.
La Gazzetta dello Sport hafði samband við Brescia í dag og spurði út í fjarveru hans en félagið neitaði að tjá sig um málið.
Balotelli er samningsbundinn út júní en það er útlit fyrir það að hann yfirgefi félagið í sumar. Hann hefur skorað 5 mörk í 19 leikjum í deildinni með Brescia sem er í neðsta sæti deildarinnar með 19 stig.
Athugasemdir