Stjórarnir í ensku úrvalsdeildinni hafa óskað eftir því að hefja leik viku á eftir áætlun eða þann 26. júní en þetta kemur fram í Mirror í kvöld.
Ekkert hefur verið spilað á Englandi frá því í byrjun apríl vegna áhrifa kórónaveirunnar en búið er að leggja fram plön um að hefja leik aftur um miðjan júní.
Áætlað er að hefja leik þann 19. júní en stjórarnir í deildinni vilja færa það til 26. júní.
Liðin eru byrjuð að æfa í smáum hópum en á næstu dögum mega liðin formlega byrja að æfa án takmarkana.
Stjórarnir hafa áhyggjur af því að ekki er nægur undirbúningur til að hefja tímabilið og vilja því ýta plönunum aftur um viku.
Athugasemdir