Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 26. maí 2020 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Thiago ekki með gegn Dortmund
Thiago
Thiago
Mynd: Sjónvarp Símans
Spænski landsliðsmaðurinn Thiago Alcantara verður ekki með Bayern München í stórleiknum gegn Borussia Dortmund í dag en Hansi Flick, þjálfari liðsins, staðfesti þetta í dag.

Thiago meiddist í 2-0 sigrinum gegn Union Berlin og var ekki með liðinu í sigrinum á Eintracht Frankfurt um helgina.

Hann æfði ekki með Bayern í gær og er ljóst að hann verður ekki með liðinu gegn Dortmund í dag.

Liðin eru í harðri baráttu um titilinn og því áfall fyrir Bayern.

„Thiago æfði ekki í gær og verður því miður ekki með okkur í leiknum gegn Dortmund," sagði Flick.

Það er þó búist við því að Jerome Boateng verði klár í slaginn en hann fór af velli í sigrinum gegn Frankfurt.
Athugasemdir
banner
banner
banner