Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 26. maí 2022 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hárgreiðslumaður Pogba varpar fram vísbendingu
Pogba í leik með Man Utd.
Pogba í leik með Man Utd.
Mynd: EPA
Hárgreiðslumaður Paul Pogba er afar upptekinn ef miðað er við það hversu oft Pogba breytir um hárstíl.

Pogba hefur skartað mörgum mismunandi hárstílum á tíma sínum hjá Manchester United, tíma sem er alveg við það að enda.

Pogba, sem er 29 ára gamall er að verða samningslaus í sumar og ætlar sér ekki að framlengja við United. Hann er á förum og mun ekki spila á Englandi næsta vetur.

Fólk spyr sig núna að því hvert Pogba mun halda, en aðallega hefur verið talað um Juventus og Paris Saint-Germain.

Hárgreiðslumaður Pogba hefur varpað fram vísbendingu um það hvert Pogba er að fara undir nýrri mynd sem franski miðjumaðurinn deildi á samfélagsmiðlum þar sem hann er með, jú nýja hárgreiðslu.

Miðað við þessa vísbendingu, þá verður Pogba leikmaður Juventus í sumar. Hann lék þar áður við góðan orðstír áður en hann gekk í raðir Man Utd fyrir 89 milljónir punda árið 2016. Hann stóðst ekki væntingarnar hjá Man Utd þegar litið er yfir tíma hans hjá félaginu sem eina heild; hann átti sín augnablik en þau voru ekki mjög mörg.


Athugasemdir
banner
banner
banner