Fotbolti.net
26.06.22 - 15:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mjólkurbikarinn: Kom inn á í 20 mínútur og gerði fernu

Stefán Ingi Sigurðarson.

Stefán Ingi Sigurðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
HK 6 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Hassan Jalloh ('49 )
2-0 Örvar Eggertsson ('53 )
3-0 Stefán Ingi Sigurðarson ('71 )
4-0 Stefán Ingi Sigurðarson ('77 )
5-0 Stefán Ingi Sigurðarson ('84 , víti)
6-0 Stefán Ingi Sigurðarson ('89 )
Lestu um leikinn
HK er komið áfram í átta-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir mjög svo þægilegan sigur gegn Dalvík/Reyni í Kórnum.

Dalvíkingar gengu reyndar sáttir inn í leikhléið því staðan var markalaus þá. Í seinni hálfleik keyrði HK yfir gestina og skoraði sex mörk.

Stefán Ingi Sigurðarson átti stórkostlega innkomu fyrir heimamenn því hann gerði fernu eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 69. mínútu.

Lokatölur 6-0 fyrir HK sem er fyrsta liðið áfram í átta-liða úrslit keppninnar. Dalvík/Reynir sem er í 3. deild er fallið úr leik en þeir geta verið sáttir með sína frammistöðu í þessari keppni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.