Spænski miðjumaðurinn Thiago Alcantara er á þeirri skoðun að Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, sé einn besti leikmaður sem hann hefur spilað með á ferlinum.
Henderson var lengi vel gagnrýndur af stuðningsfólki Liverpool fyrir frammistöðu sína en hefur undanfarin ár unnið hug og hjörtu þeirra sem leiðtoginn í stórkostlegum árangri liðsins.
Hann er í miklum metum hjá Thiago, sem kom til Liverpool fyrir síðustu leiktíð.
„Hann kemur með þá ákefð sem liðið þarf á að halda og hann hjálpar okkur allan leikinn,” segir Thiago.
„Hann er einn besti miðjumaður sem ég hef spilað með á ferlinum.”
Þetta er mikið hrós því Thiago hefur spilað með miðjumönnum á borð við Andres Iniesta, Xavi og Toni Kroos.
Athugasemdir