Fotbolti.net
26.08.18 - 20:31
Lárus Ingi Magnússon

Óli Kristjáns: Slétt sama hvort maður í hvítum eða dökkbláum setur hann

Auglýsing
Ólafur Kristjánsson þjálfari FH á hliðarlínunni fyrr í sumar.

Ólafur Kristjánsson þjálfari FH á hliðarlínunni fyrr í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Það er alltaf gott að vinna og fá þrjú stig. Við erum búnir að vera að leita að þessum sigri í svolítinn tíma og fengum þrjú stig í dag,\"</i> sagði Ólafur Kristjánsson þjálfari FH eftir 1-3 sigur á Keflavík í kvöld.
„Við fengum mótspyrnu, við vissum að Keflavík væri komið með annan fótinn í Inkasso og hefði engu að tapa.Þeir voru erfiðir.\"

FH skoraði þrjú mörk í leiknum í dag en gekk samt illa á síðasta þriðjungnum og fékk aðstoð Keflavíkur við að skora seinni tvö mörkin.

„Þegar við spiluðum út í brautina og notuðum vængbakverðina fannst mér við eiga auðvelt með að komast í gegn en svo var það síðasta sending sem hefði mátt vera betri. En við höfum átt í erfiðleikum með að búa til færi. Aðstoð og ekki aðstoð, við töluðum um að þegar við kæmumst í þessar stöður ætti að negla honum fyrir markið og þá er mér slétt sama hvort það er maður í hvítum sokkum eða dökkbláum sem setur hann í netið.\"

Nánar er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.