Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. október 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gera grín að Sancho - Eins og James Bond
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: Getty Images
Enski kantmaðurinn Jadon Sancho hefur átt erfitt uppdráttar hjá Manchester United í upphafi tímabils.

Sancho gekk í raðir Man Utd frá Borussia Dortmund í sumar og kostaði enska félagið 73 milljónir punda. Hann gerði fimm ára samning.

Hann hefur ekki sýnt sitt rétta andlit, og ekki náð að skora eða leggja upp í þeim sjö deildarleikjum sem hann hefur komið við sögu í. Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, ákvað að nota hann ekkert gegn Liverpool um síðustu helgi; Sancho var allan tímann á bekknum.

Sky í Þýskalandi ákvað að slá á létta strengi með þessa erfiðu byrjun Sancho. Mynd var kastað upp af Sancho í hlutverki James Bond í útsendingu hjá sjónvarpsstöðinni.

Bond - sem er víðfrægur karakter - er njósnari 007. Sancho hefur skorað 0 mörk, lagt upp 0 mörk í sjö leikjum. Hér að neðan má sjá myndina. Það er samt ólíklegt að Sancho hafi hlegið mikið af þessu - ef hann hefur séð þetta.


Athugasemdir
banner
banner
banner