Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. nóvember 2019 22:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho segist sjálfur hafa verið gáfaður boltastrákur
Mourinho var ánægður með boltastrákinn.
Mourinho var ánægður með boltastrákinn.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, þjálfari Tottenham, var vægast sagt ánægður með einn boltastrákinn hjá Spurs í kvöld.

Í öðru marki Tottenham í 4-2 sigrinum á Olympiakos var umræddur boltastrákur mjög snöggur að koma boltanum á Serge Aurier sem tók snöggt innkast.

Aurier kastaði boltanum á Lucas Moura sem sendi boltann á Harry Kane sem skoraði.

Eftir markið fór Mourinho upp að boltastráknum og faðmaði boltastrákinn. Hann hrósaði honum svo eftir leikinn.

„Ég elska gáfaða boltastráka eins og ég var. Þessi strákur er snillingur, hann las leikinn, skilur leikinn og gaf okkur mikilvæga stoðsendingu," sagði Mourinho og bætti við: „Þetta var mikilvæg stund fyrir hann og hann mun aldrei gleyma henni."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner