Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. janúar 2020 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bergwijn neitaði að spila með PSV - Vill fara til Tottenham
Mynd: Getty Images
Tottenham er á höttunum eftir Steven Bergwijn, 22 ára kantmanni PSV Eindhoven sem kostar rúmlega 30 milljónir evra.

Bergwijn er uppalinn hjá PSV og lék mikið með Alberti Guðmundssyni þegar þeir voru saman í unglinga- og varaliðum félagsins.

Hann þykir gríðarlega mikið efni og er Tottenham reiðubúið að greiða 30 milljónir fyrir hann, en PSV er talið vilja 40 milljónir.

Bergwijn sjálfur vill ólmur komast í enska boltann og neitaði að spila með PSV í 1-1 jafntefli gegn Twente í gær.

Bergwijn er búinn að skora 5 mörk í 16 deildarleikjum á tímabilinu en á síðustu leiktíð gerði hann 14 mörk í 33 leikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner