Fotbolti.net
27.01.21 - 21:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Þýskaland: Guðlaugur Victor sneri aftur inn á völlinn

Þýskaland: Guðlaugur Victor sneri aftur inn á völlinn
Canon

Mynd: Getty Images

Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson sneri aftur inn á fótboltavöllinn með Darmstadt í kvöld.
Guðlaugur Victor hefur verið fjarri góðu gamni síðustu þrjá mánuðina af persónulegum ástæðum.

Hann var sterklega orðaður við heimkomu og var KR þá helst nefnt sem áfangastaður, en svo virðist sem hann verði áfram í Þýskalandi.

Hann kom inn á undir lokin þegar Darmstadt vann flottan 2-1 sigur gegn Sandhausen í kvöld. Darmstadt er í 13. sæti deildarinnar með 21 stig. Fyrir leikinn í kvöld hafði Darmstadt tapað fjórum leikjum í röð en er núna aftur komið á sigurbraut.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.