Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. janúar 2021 16:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Var undrabarn í Celtic en rær núna líklega á önnur mið
Karamoko Dembele.
Karamoko Dembele.
Mynd: Getty Images
Mark Wilson, fyrrum leikmaður Celtic, segir að Karamoko Dembele sé á förum frá félaginu þegar þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

Fyrsta fréttin um þennan dreng hér á Fótbolta.net er frá árinu 2016 þegar hann var aðeins 13 ára. Þá spilaði hann með U20 liði Celtic. Smelltu hér til að lesa fréttina.

Hann er núna orðinn 17 ára gamall og fær ekki mikið að spila með aðalliði Celtic. Hann hefur aðeins tvisvar sinnum spilað í skosku úrvalsdeildinni á þessu tímabili, en í báðum leikjunum hefur hann komið inn á sem varamaður.

Wilson stýrir hlaðvarpinu The Celtic Huddle podcast sé á leið frá Celtic í sumar. Það sé meðal annars áhugi á honum frá Frakklandi; frá Lille og Nantes.
Athugasemdir
banner
banner