Brasilíumaðurinn Neymar virðist vera nálægt því að gera samkomulag við Paris Saint-Germain um nýjan samning.
Brasilíski landsliðsmaðurinn er á leið inn í lokaár samnings síns í frönsku höfuðborginni en hann var keyptur frá Barcelona á metfé 2017.
Hann hefur oft verið orðaður við endurkomu til Barcelona en miðað við nýjustu ummæli hans virðist hann ekki á förum.

„Ég hef verið að ræða um endurnýjun á samningi. Ég er mjög ánægður í París. Við erum í viðræðum við PSG og ég hef góða tilfinningu, ég er ánægður," sagði Neymar við Marca.
Neymar verður í eldlínunni með PSG annað kvöld en þá leikur liðið fyrri leik sinn gegn Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir