Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 27. apríl 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Pulisic: Ég er ekki að reyna að vera eins og Hazard
Christian Pulisic
Christian Pulisic
Mynd: Getty Images
Christian Pulisic, leikmaður Chelsea, er ekki að reyna að vera eins og belgíski leikmaðurinn Eden Hazard.

Pulisic og Hazard eigast við í kvöld í fyrri leik Chelsea og Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Hazard er einn besti leikmaðurinn í sögu Chelsea en hann var seldur til Real Madrid árið 2019, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hafa unnið Evrópudeildina með enska félaginu.

Pulisic er að gera fína hluti hjá Chelsea en hann vill þó ekki bera sig saman við Hazard.

„Hann var magnaður leikmaður fyrir þetta félag. Ég leit upp til hans en ég er ekki að bera mig saman við hann eða reyna að vera eins og hann," sagði Pulisic.

„Ég er bara ég sjálfur og reyni að gera mitt besta fyrir félagið en hann var augljóslega frábær fyrir félagið og það er heiður að heyra að það sé verið að bera mig saman við hann en ég á enn langt í land," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner