Enska götublaðið The Sun segir að Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Manchester United, hafi drepið tímann í útgöngubanninu vegna kórónaveirunnar með því að kubba eftirlíkingu af Old Trafford með Lego kubbum.
Hinn 78 ára gamli Ferguson sá að hægt var að byggja Old Trafford með Lego kubbum og bað félagið um að senda sér kassa með kubbunum.
Um er að ræða 3898 kubba en út í búð kostar þessi kassi af Lego 250 pund (43 þúsund krónur).
Samkvæmt upplýsingum Lego má fólk búast við því að það taki sjö og hálfan klukkutíma að klára að byggja Old Trafford leikvanginn með Lego kubbum.
Athugasemdir