Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mið 27. maí 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Spá ástríðunnar fyrir 3. deildina í sumar
Úr leik KV og Einherja í 3. deildinni.
Úr leik KV og Einherja í 3. deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Óskar Smári Haraldsson, Atli Jónasson og Ingimar Helgi Finnsson mættu í „Ástríðuna" í gær þar sem þeir fóru yfir 3. deildina fyrir tímabilið.

Þeir settu saman spá sína fyrir mót, fóru yfir lykilmenn og leikmenn sem gaman verður að fylgjast með.

Þegar nær dregur móti mun Fótbolti.net birta spá þjálfara fyrir tímabilið.

„Þetta er sterkasta 3. deild sem hefur verið síðan henni var breytt í þetta fyrirkomulag. Það er mikið af góðum leikmönnum og góðum liðum í þessari deild," sagði Atli í þættinum.

Spá ástríðunnar
1. KV
2. Augnablik
3. KFG
4. Reynir S.
5. Tindastóll
6. Höttur/Huginn
7. Álftanes
8. Vængir Júpíters
9. Einherji
10. Ægir
11. Sindri
12. Elliði
Ástríðan - Sérfræðingar spá í 3. deildina
Athugasemdir
banner
banner
banner