Fotbolti.net
27.05.22 - 17:13
Ívan Guðjón Baldursson

Thiago og Fabinho litu vel út á æfingu

Thiago og Fabinho á æfingunni í dag.

Thiago og Fabinho á æfingunni í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liverpool er að undirbúa sig fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid sem fer fram annað kvöld.

Miðjumennirnir Thiago Alcantara og Fabinho hafa verið að glíma við meiðsli og var búist við að annar hvor þeirra myndi missa af úrslitaleiknum - eða jafnvel báðir.

Útlitið er þó ansi gott þar sem þeir litu vel út á æfingum í dag og í gær og gæti farið svo að þeir verði báðir í byrjunarliðinu.

„Stemningin í hópnum er mjög góð, við erum gríðarlega spenntir að vera hérna," sagði Klopp á fréttamannafundi í dag.

„Thiago og Fabinho líta báðir vel út. Fabinho hefur verið að æfa eðlilega á meðan Thiago æfði með hópnum í gær og gerir það aftur í dag og svo sjáum við til."

Fabinho á æfingunni.

Fabinho á æfingunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.