Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 27. júní 2022 14:23
Elvar Geir Magnússon
Di Maria inn en Ramsey út hjá Juventus
Angel Di Maria.
Angel Di Maria.
Mynd: Getty Images
Umboðsmaður Angel Di Maria hefur staðfest að viðræður við Juventus séu á lokastigi. Argentínumaðurinn kemur til Juve á frjálsri sölu frá Paris Saint-Germain.

Di Maria tók ákvörðun í gærkvöldi um að semja við Juve og verið er að ganga frá málum. Talið er að þessi 34 ára vængmaður geri eins árs samning með möguleika á öðru ári.

Þá er það að frétta úr herbúðum Juve að IlBianconero.com segir að félagið hafi ákveðið að taka á sig 4 milljóna evra skell til að rifta samningi Aaron Ramsey.

Velski miðjumaðurinn hefur orðið myllusteinn um hálsinn á Juventus, hann hefur ekki spilað vel og talsvert verið meiddur. Hann var lánaður til Rangers á liðnu tímabili en gerði ekki merkilega hluti þar.

Ramsey hefur verið orðaður við tyrkneska félagið Fatih Karagumruk.
Athugasemdir
banner
banner