Fotbolti.net
27.06.22 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Moyes vill Danjuma

Moyes vill Danjuma
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham hefur sett sig í samband við Villarreal þar sem félagið hefur áhuga á að kaupa hollenska sóknarmanninn Arnaut Danjuma. David Moyes vill efla sóknarleik Hamranna í sumar.

Hinn 25 ára gamli Danjuma hefur verið funheitur undanfarna tólf mánuði, hann getur bæði spilað sem fremsti maður og á vængnum. Hann hjálpaði Villarreal að komast í undanúrslit Meistaradeildarinnar og skoraði sautján mörk fyrir land og lið á síðasta tímabili.
West Ham hefur horft löngunaraugum til Danjuma í nokkurn tíma en hann hefur spilað virkilega vel fyrir Villarreal síðan hann kom frá Bournemouth fyrir ári.

Búist er við því að hann verði í hollenska HM hópnum seinna á árinu. Það gæti reynst erfitt fyrir West Ham að lokka Danjuma til sín en áhuginn á honum er mikill.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.