Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 27. júlí 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Haller frá í einhverja mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð
Mynd: Getty Images
Sebastien Haller, framherji Borussia Dortmund í Þýskalandi, hefur gengist undir aðgerð eftir að hann greindist með æxli í eistum.

Meinið kom í ljós í síðustu viku þar sem hann var í æfingabúðum með Dortmund.

Aðgerðin heppnaðist vel og Sebastian Kehl, íþróttastjóri Dortmund, segir að Haller sé á réttri braut.

Ekki sé ljós hversu lengi hann verði frá en það muni teljast í mánuðum.

Haller er 28 ára og gekk í raðir Dortmund frá Ajax fyrr í þessum mánuði, fyrir 31 milljón evra.


Athugasemdir
banner
banner
banner