banner
   sun 27. september 2020 18:28
Aksentije Milisic
Byrjunarlið HK og Stjörnunnar: Tvær breytingar hjá báðum liðum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur HK og Stjörnunnar hefst klukkan 19:15 í kvöld og er dómari leiksins Jóhann Ingi Jónsson. HK hefur gert jafntefli í tveimur síðustu leikjum sínum og báðir hafa þeir endað 1-1. Sá fyrri kom gegn Víkingi í Fossvoginum og sá síðari í snjókomunni á Akureyri í miðri viku gegn KA.

Stjarnan hefur hins vegar tapað tveimur síðustu leikjum. Fyrst var það stórtap gegn Val í Garðabænum og nú síðasta átti liðið einungis eina marktilraun í 2-1 tapi gegn Breiðabliki.

Byrjunarliðin eru komin í hús og má þau sjá hér fyrir neðan.

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá síðasta leik. Atli Arnarson og fyrirliðinn Leifur Andri Leifsson koma inn fyrir Martin Rauschenberg og Ólaf Örn Eyjólfsson.

Stjörnumenn gera tvær breytingar á sínu liði frá tapleiknum gegn Breiðablik. Björn Berg Bryde og Elís Rafn Björnsson koma inn í byrjunarliðið fyrir Halldór Orra Björnsson og Alex Þór Hauksson.

Byrjunarlið HK:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
5. Guðmundur Þór Júlíusson
7. Birnir Snær Ingason
8. Arnþór Ari Atlason
10. Ásgeir Marteinsson
18. Atli Arnarson
14. Hörður Árnason
17. Jón Arnar Barðdal
22. Þórður Þorsteinn Þórðarson
4. Leifur Andri Leifsson (f)

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
7. Guðjón Baldvinsson
21. Elís Rafn Björnsson
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson
24. Björn Berg Bryde
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner