Fotbolti.net
27.10.26 - 22:41
Ívan Guðjón Baldursson

Júlíus skoraði í jafntefli - Alfons og Stefán léku í stórsigri

Júlíus skoraði í jafntefli - Alfons og Stefán léku í stórsigri
Canon

Mynd: Elfsborg

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu víða um Evrópu í dag og skoraði Júlíus Magnússon fyrsta mark leiksins í jafntefli hjá Elfsborg gegn AIK í sænska boltanum.
Júlíus náði forystunni fyrir gestina í liði Elfsborg á 25. mínútu en AIK snéri stöðunni við áður en Elfsborg gerði jöfnunarmark undir lokin, svo lokatölur urðu 2-2.

Ari Sigurpálsson var með Júlíusi í byrjunarliði Elfsborg og fékk að spila fyrstu 70 mínúturnar. Þetta var þriðja jafnteflið í röð hjá Elfsborg sem þýðir að liðið er svo gott sem búið að missa af Evrópusæti. Íslendingaliðið situr í 5. sæti með 43 stig eftir 26 umferðir.

Það var fjör í hollenska bikarnum þegar Alfons Sampsted lék allan leikinn í stórsigri Go Ahead Eagles. Stefán Ingi Sigurðarson fékk að spila seinni hálfleikinn en hvorugur Íslendinganna komst á blað í fimm marka sigri.

Helgi Fróði Ingason lék síðustu 40 mínúturnar í tapi Helmond á heimavelli gegn Willem II eftir fjörugan slag þar sem lokatölur urðu 3-4 á meðan Nökkvi Þeyr Þórsson lék allan leikinn í tapi Telstar gegn Almere.

Á Englandi var Benóný Breki Andrésson í byrjunarliði Stockport sem tapaði mikilvægum toppbaráttuslag á útivelli gegn Oxford. Lokatölur urðu 1-0 í afar opnum og skemmtilegum slag.

Stockport situr í öðru sæti eftir tapið með 23 stig eftir 13 umferðir, aðeins einu stigi fyrir ofan Oxford sem á tvo leiki til góða.

Í danska bikarnum var Adam Ingi Benediktsson á sínum stað á milli stanga AB sem tapaði naumlega gegn stórveldi Bröndby. Fannar Berg Gunnólfsson er að gera flotta hluti sem aðalþjálfari AB, sem er nýliði í næstefstu deild.

Aron Einar Gunnarsson var þá ekki með í tapi Qatar SC vegna meiðsla. Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í hóp hjá FC Südtirol sem tapaði í næstefstu deild á Ítalíu.

AIK 2 - 2 Elfsborg
0-1 Júlíus Magnússon ('25)
1-1 J. Hove ('44)
2-1 S. Gustafsson ('85)
2-2 R. Wikström ('90)

HFC 0 - 5 G.A. Eagles

Helmond 3 - 4 Willem II

Telster 0 - 2 Almere

Oxford 1 - 0 Stockport

AB 1 - 2 Bröndby

Al-Riffa 4 - 1 Qatar SC

Padova 2 - 0 Sudtirol
Júlíus skoraði í jafntefli - Alfons og Stefán léku í stórsigri
Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.