Fotbolti.net
27.10.26 - 21:20
Ívan Guðjón Baldursson

„Mun vinna mikið af gullboltum á ferlinum"

„Mun vinna mikið af gullboltum á ferlinum"
Canon

Mynd: EPA

Joan Laporta, forseti Barcelona, og Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, hafa tjáð sig opinberlega eftir verðlaunahátíð Ballon d'Or sem fór fram í gærkvöldi.
Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)
TENGT EFNI

Kane vann Ballon d'Or verðlaunin (Staðfest)

Þeir ræddu báðir um ungstirnið Lamine Yamal sem endaði í þriðja sæti í kosningunni um besta leikmann ársins, ásamt því að hreppa verðlaunin fyrir að vera besti ungi leikmaðurinn þriðja árið í röð.

„Lamine hefur sannað gæði sín og að hann verðskuldaði að vinna Ballon d'Or, en því miður þá vann hann ekki í ár. Núna er mikilvægt að umkringja hann af ást og stuðningi út af því að hann á það skilið. Hann getur unnið þessi verðlaun á næsta ári," sagði Laporta.

Yamal hefur unnið bæði HM og EM með spænska landsliðinu þrátt fyrir ungan aldur. Hann á einungis eftir að vinna Meistaradeild Evrópu eftir að hafa orðið Spánarmeistari þrisvar sinnum og bikarmeistari einu sinni.

„Lamine Yamal mun vinna mikið af gullboltum (Ballon d'Or) á ferlinum, hann þarf bara að muna að halda alltaf yfirvegun. Hann er stórkostlegur fótboltamaður," sagði De la Fuente.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.