Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. janúar 2023 20:34
Ívan Guðjón Baldursson
Porro kveður Sporting eftir úrslitaleikinn
Mynd: EPA

Pedro Porro verður nýr leikmaður Tottenham fyrir gluggalok. Fabrizio Romano greinir frá þessu.


Porro er að spila síðasta leik sinn með Sporting CP í Portúgal áður en hann flýgur til London til að gangast undir læknisskoðun.

Porro er á sínum stað í byrjunarliði Sporting sem er að spila úrslitaleik deildabikarsins við Porto. Porro er hægri vængbakvörður en staðan er 0-1 fyrir Porto í leikhlé þrátt fyrir að Sporting hafi fengið fleiri marktækifæri.

Romano greinir frá því að Porro mun skrifa undir samning við Tottenham sem gildir til 2028. Kaupverðið er óuppgefið en talið vera nálægt 45 milljón evra riftunarákvæði Porro.

Hjá Tottenham mun Porro berjast við Emerson Royal og Matt Doherty um byrjunarliðssæti í hægri vængbakverði á meðan Djed Spence verður líklegast lánaður út fyrir gluggalok.


Athugasemdir
banner