Fotbolti.net
28.01.25 - 18:30
Elvar Geir Magnússon

Coote á skilið að hafa hlutverk í enskum fótbolta

David Coote opinberaði samkynhneigð sína í viðtali við The Sun.

David Coote opinberaði samkynhneigð sína í viðtali við The Sun.

Canon

Mynd: Getty Images

David Coote á það skilið að hafa áfram hlutverk í enskum fótbolta. Þetta segir Paul Field, formaður dómarasambandsins.

Samningi Coote sem úrvalsdeildardómara var rift í síðasta mánuði eftir að myndband fór í dreifingu þar sem hann fór vondum orðum um Jurgen Klopp og svo annað myndband þar sem hann sést taka kókaín.

Coote baðst afsökunar á hegðun sinni í viðtali við The Sun en í sama viðtali greindi hann frá því að hann væri samkynhneigður, eitthvað sem hann hafði haldið leyndu af ótta við illgjörn viðbrögð.

Coote segist hafa átt í erfiðleikum í persónulega lífinu en hafi leitað sér hjálpar.
Coote er kominn út úr skápnum
TENGT EFNI

Coote er kominn út úr skápnum

„Hann á skilið að hafa hlutverk. Hann hefur unnið frábærlega með ungu fólki og er magnaður kennari. Hann hefur lagt svo mikla vinnu í að þjálfa upp unga dómara og hefur svo margt fram að færa," segir Field.

„Ég myndi elska ef hann væri í starfi hjá enska sambandinu við að þjálfa upp unga dómara, burtu frá sviðsljósinu. Ég held að hann geri sér ekki grein fyrir þeirri virðingu sem han hefur frá öðrum dómurum fyrir það starf sem hann hefur unnið."

Field segist skilja Coote að hafi ekki opinverað kynhneigð sína á meðan hann var að dæma.

„Sama hvaða vinkil stuðningsmenn fá þá munu þeir nota sér hann. Dómararnir okkar hafa fengið hryllilegar hótanir og skilaboð og þessir vitleysingar munu nota sér allt sem þeir geta," segir Field.
Coote á skilið að hafa hlutverk í enskum fótbolta
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.