Sölvi Geir Ottesen var í síðustu viku ráðinn nýr þjálfari Víkings. Hann stígur í þau stóru fótspor að taka við liðinu af Arnari Gunnlaugssyni sem hefur verið ráðinn sem landsliðsþjálfari Íslands.
Sölvi var frábær leikmaður á sínum ferli en fljótlega eftir að skórnir fóru upp fór hann að þjálfa. Hann hefur sankað að sér reynslu síðustu árin sem aðstoðarþjálfari Víkings og einnig sem hluti af þjálfarateymi Íslands.
Sölvi var frábær leikmaður á sínum ferli en fljótlega eftir að skórnir fóru upp fór hann að þjálfa. Hann hefur sankað að sér reynslu síðustu árin sem aðstoðarþjálfari Víkings og einnig sem hluti af þjálfarateymi Íslands.
Sölvi ætlaði sér ekki alltaf að verða þjálfari þegar skórnir færu upp á hillu en þetta er fljótt að breytast. Í dag er hann gríðarlega metnaðarfullur þjálfari.
„Það er hrikalega gaman þegar menn finna sig. Það voru ekki allir sem héldu að Arnar Gunnlaugsson myndi halda áfram í þjálfun. Svo smellur eitthvað og hann verður að því sem hann er orðinn," sagði Tómas Þór Þórðarson, stuðningsmaður Víkings, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á dögunum þegar rætt var um ráðninguna á Sölva.
„Það er svipað sem gerist hjá Sölva. Svo er bara verið að segja hluti... ég heyrði á skrifstofunni talað um eitthvað risa Excel skjal sem Sölvi er búinn að búa til með upplýsingum um tölfræði og svona. Þá hugsum við samferðamenn hans að Sölvi Geir Ottesen og Excel skjal sé tvennt sem passar ekki saman," sagði Tómas í góðlátlegu gríni.
„Það er merkilegt og gaman hvað menn geta fundið sig."
„Kári Árnason (yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi) sá það frá fyrsta degi að Sölvi væri framtíðarþjálfarinn. Þetta hefur eiginlega verið lengri aðdragandi en bara þetta Norrköping dæmi. Kári er löngu búinn að eyrnarmerkja Sölva sem aðalþjálfara," sagði Tómas jafnframt.
Elvar Geir Magnússon kom inn á það að það væri mikil rómantík í því að Kári og Sölvi, tveir af bestu leikmönnum í sögu Víkings, væru núna að stjórna hjá félaginu. Markmiðið er að halda áfram flottum árangri eftir viðskilnaðinn við Arnar.
Stórt nafn í Danmörku
Sölvi átti frábæran feril sem leikmaður og ef hann nær að gera góða hluti með Víking, þá munu augun líklega beinast að honum úr stærri deildum.
„Það var risastór frétt um Sölva í dönskum fjölmiðlum. Ef hann viðheldur góðum árangri með Víkinga þá standa honum dyr opnar í Danmörku því hann er nafn þar," sagði Elvar í þættinum en Sölvi var á sínum tíma einn besti varnarmaður dönsku úrvalsdeildarinnar er hann lék fyrir FC Kaupmannahöfn.
Athugasemdir