Fotbolti.net
28.01.25 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Oliver lætur engan bilbug á sér finna

Michael Oliver dæmir um næstu helgi.

Michael Oliver dæmir um næstu helgi.

Canon

Mynd: EPA

Michael Oliver dómari lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir að hafa orðið fyrir hótunum eftir að hafa rekið varnarmanninn Myles Lewis-Skelly af velli á laugardaginn.

Oliver og fjölskylda hans fengu hótanir sem eru undir lögreglurannsókn en þrátt fyrir það óskaði Oliver eftir því við vinnuveitendur sína, ensku úrvalsdeildina og UEFA, að fá að halda sínu striki.
Fékk hótanir og ljót skilaboð frá stuðningsmönnum Arsenal
TENGT EFNI

Fékk hótanir og ljót skilaboð frá stuðningsmönnum Arsenal

Á samfélagsmiðlum var Oliver, konu hans og ungu barni hótað. Keith Hackett, fyrrum yfirmaður dómaramála á Englandi, ráðlagði Oliver að taka sér frí frá störfum og hvílast.

En Oliver vill halda áfram og mun dæma leik Ipswich og Southampton á laugardaginn og mun dæma grannaslag Everton og Liverpool 12. febrúar.

„Enginn dómari ætti að verða fyrir ofsóknum eins og hefur verið beint að Michael og hans fjölskyldu síðasta sólarhringinn," segir í yfirlýsingu dómarasamtakanna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.