Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, telur að það sé engin leið til baka hjá félaginu fyrir Marcus Rashford.
Rashford hefur verið utan hóps í flestum leikjum eftir að Rúben Amorim tók við stjórnartaumunum en eftir sigur gegn Fulham á dögunum sagði Amorim að Rashford væri ekki að leggja nægilega mikið fram.
Rashford hefur verið utan hóps í flestum leikjum eftir að Rúben Amorim tók við stjórnartaumunum en eftir sigur gegn Fulham á dögunum sagði Amorim að Rashford væri ekki að leggja nægilega mikið fram.
„Okkur sárvantaði hraðann leikmann á varamannabekkinn í dag en ég myndi frekar setja Jorge Vital þangað heldur en leikmann sem leggur sig ekki 100% fram á hverjum degi," sagði Amorim en Vital er 63 ára gamall markvarðarþjálfari Man Utd.
Ferdinand, sem er goðsögn hjá Man Utd, talaði um málið í hlaðvarpi sínu. Þar sagði hann: „Ef ég væri leikmaður sem lenti í þessu, þá væri það sárt fyrir hjartað, stoltið og egóið. Það væri vandræðalegt," segir Ferdinand.
„Þetta eru sláandi ummæli og það er engin leið til baka fyrir Marcus eftir þetta."
Rashford fór vel af stað hjá Amorim en svo missti hann sæti sitt í liðinu og fór í viðtal um að hann þyrfti nýja áskorun. Enn sem komið er hefur engu félagi tekist að krækja í hann.
Athugasemdir