Stelpurnar okkar munu dvelja í náttúruparadís við Alpana

Parkhotel Gunten er við Thun-vatn.

Mynd: Parkhotel Gunten

Parkhotel Gunten er við Thun-vatn.

Mynd: Parkhotel Gunten

Íslenska kvennalandsliðið tekur í sumar þátt í Evrópumótinu í Sviss og verður riðillinn hjá stelpunum okkar spilaður í Thun og Bern 2. - 10. júlí.
KSÍ hefur bókað hótel fyrir íslenska liðið á mjög hentugri staðsetningu í bænum Gunten við Thun-vatn. Þaðan er innan við 20 mínútna akstur á leikvanginn í Thun og rúmur klukkutími til Bern.
KSÍ hefur bókað hótel fyrir íslenska liðið á mjög hentugri staðsetningu í bænum Gunten við Thun-vatn. Þaðan er innan við 20 mínútna akstur á leikvanginn í Thun og rúmur klukkutími til Bern.
Gist verður á Parkhotel Gunten en þaðan er dásamlegt útsýni yfir vatnið og fjöllin í kring. Við hótelið er garður sem vel er látið af.
Hótelið er vinsælt hjá útivistarfólki og þar má finna spa og líkamsræktaraðstöðu. Þar er líka myndarlegur vínkjallari sem verður þó væntanlega lítið heimsóttur af íslenska hópnum.
Íslenska liðið ætti að geta gert góða hluti á EM, það hefur verið góður stígandi í liðinu, lykilmenn eru á kjöraldri og markmiðið að toppa í Sviss. Ísland er með heimakonum í Sviss í riðli, ásamt Finnlandi og Noregi. Íslenska liðið er efst á heimslistanum af liðum riðilsins.

Ekki amalegt umhverfi, útsýni að Ölpunum.

Mynd: Parkhotel Gunten

Garðurinn við hótelið fær lofsamlega dóma hjá hótelgestum.

Mynd: Parkhotel Gunten

Hér munu stelpurnar okkar eyða drjúgum tíma.

Mynd: Parkhotel Gunten

Tignarlegur gangur á hótelinu.

Mynd: Parkhotel Gunten

Útsýni upp á 10.

Mynd: Parkhotel Gunten

Huggulegur matsalur.

Mynd: Parkhotel Gunten

Spa skáli við vatnið.

Mynd: Parkhotel Gunten

Hér munu Þorsteinn Halldórsson og hans teymi halda fundi.

Mynd: Parkhotel Gunten

Eitt af herbergjum hótelsins.

Mynd: Parkhotel Gunten