Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. mars 2021 11:09
Elvar Geir Magnússon
Annar lykilmaður Armena dettur út
Icelandair
Gevorg Ghazaryan.
Gevorg Ghazaryan.
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimasíðu knattspyrnusambands Armeníu er Gevorg Ghazaryan ekki leikfær fyrir leikinn gegn Íslandi í dag.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Armena en Ghazaryan er lykilmaður og einn reyndasti leikmaður liðsins.

Hann er sá reynslumesti í hópnum með 73 landsleiki og hann er einnig sá markahæsti með 14 mörk. Hann var ekki með gegn Liechtenstein og er ekki leikfær í dag ef marka má knattspyrnusamband Armeníu.

Hann leikur sem sóknarsinnaður miðjumaður hjá Lamia í Grikklandi. Þar leikur einnig Theódór Elmar Bjarnason.

Bæði lið verða án síns besta manns í dag; Armenía án Henrikh Mkhitaryan og Ísland án Gylfa Þórs Sigurðssonar.

Sjá einnig:
Þetta eru mikilvægustu leikmenn Armeníu
Athugasemdir
banner