Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 28. mars 2023 21:38
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Æfingaleikur: De Bruyne frábær í sigri á Þýskalandi
Mynd: Getty Images

Germany 2 - 3 Belgium
0-1 Yannick Carrasco ('6 )
0-2 Romelu Lukaku ('9 )
1-2 Niclas Fullkrug ('44 , víti)
1-3 Kevin De Bruyne ('78 )
2-3 Serge Gnabry ('87 )


Belgía var með gríðarlega mikla yfirburði í upphafi leiks gegn Þjóðverjum í æfingaleik. Annar sigur hjá þjóðverjanum Domenico Tedesco í fyrstu tveimur leikjunum.

Belgía var komið í 2-0 eftir 10 mínútna leik en Yannick Carasco og Romelu Lukaku skoruðu mörkin en Kevin de Bruyne lagði bæði mörkin upp. Belgía hélt áfram að sækja og fengu nokkur góð tækifæri til að bæta við mörkum í fyrri hálfleik.

Þýskaland minnkaði hins vegar muninn undir lok fyrri hálfleiks þegar Niclas Fullkrug skoraði úr vítaspyrnu. Vítaspyrnan var dæmd þegar Romelu Lukaku fékk boltann í höndina eftir hornspyrnu.

Þjóðverjar gerðu allt sem þeir gátu til að jafna metin en það var hins vegar De Bruyne sem tryggði Belgíu sigurinn með marki eftir góða skyndisókn.

Serge Gnabry skoraði svo sárabótamark undir lok leiksins.


Athugasemdir
banner
banner