Risatilboði Chelsea hafnað - Tekur Nuno við West Ham? - Tveir á blaði United - Ungur miðvörður til Arsenal?
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
fimmtudagur 11. september
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. september
Undankeppni HM
mánudagur 8. september
Undankeppni EM U21
sunnudagur 7. september
Besta-deild kvenna
föstudagur 5. september
Undankeppni HM
laugardagur 30. ágúst
Besta-deild kvenna
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Lengjudeild karla
miðvikudagur 27. ágúst
Forkeppni Meistaradeildarinnar
mánudagur 25. ágúst
föstudagur 22. ágúst
Besta-deild kvenna
Mjólkurbikar úrslit
mánudagur 18. ágúst
Besta-deild karla
laugardagur 16. ágúst
Mjólkurbikar kvenna
fimmtudagur 14. ágúst
Besta-deild kvenna
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
þriðjudagur 16. september
FA Cup
Banbury United - Chasetown - 18:45
Chichester - Whitstable Town - 18:45
Dagenham - Bedford Town - 18:45
Evesham United - Racing Club Warwick - 18:45
Halesowen Town - Grimsby Borough - 18:45
Horsham - Westfields - 18:45
Slough Town - Welling Town - 18:45
Southport - Radcliffe Boro - 18:45
Tonbridge Angels - Steyning Town - 18:45
Weston-super-Mare - Taunton Town - 18:45
Witham Town - Mulbarton Wanderers - 18:45
Worthing - Jersey Bulls - 18:45
Deildabikarinn
Sheff Wed - Grimsby - 18:45
Brentford - Aston Villa - 19:00
Crystal Palace - Millwall - 19:00
Meistaradeildin
PSV - St. Gilloise - 16:45
Athletic - Arsenal - 16:45
Juventus - Dortmund - 19:00
Tottenham - Villarreal - 19:00
Real Madrid - Marseille - 19:00
Benfica - Qarabag - 19:00
sun 28.apr 2024 12:00 Mynd: KF - Guðný Ágústsdóttir
Magazine image

Spá þjálfara í 2. deild: 11. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla þjálfara liðanna í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í ellefta sæti í spánni er KF og ef þessi spá rætist, þá munu þeir falla niður um deild.

Afsannar KF spánna aftur?
Afsannar KF spánna aftur?
Mynd/KF - Guðný Ágústsdóttir
Halldór Ingvar Guðmundsson er þjálfari liðsins og er hann á leið inn í sitt annað tímabil.
Halldór Ingvar Guðmundsson er þjálfari liðsins og er hann á leið inn í sitt annað tímabil.
Mynd/KF
Ljubomir Delic og Jordan Damachoua eru lykilmenn í KF, það er klárt mál.
Ljubomir Delic og Jordan Damachoua eru lykilmenn í KF, það er klárt mál.
Mynd/KF
Daniel Kristiansen, sá danski.
Daniel Kristiansen, sá danski.
Mynd/KF - Guðný Ágústsdóttir
Á góðri stundu.
Á góðri stundu.
Mynd/KF - Guðný Ágústsdóttir
Hvað gerir KF í sumar?
Hvað gerir KF í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Spáin:
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11. KF, 27 stig
12. Kormákur/Hvöt, 13 stig

11. KF
Annað árið í röð er KF spáð ellefta sæti 2. deildar af þjálfurum deildarinnar. Liðið afsannaði spánna í fyrra með því að enda nokkuð þægilega í tíunda sæti deildarinnar, langt á undan Sindra og KV sem voru tvö neðstu liðin. KF hefur fæst rætur í 2. deild en liðið er núna á leið inn í sitt fimmta tímabil í röð í deildinni. Besti árangurinn til þessa var fimmta sæti árið 2021 og frá þeim tíma eru enn nokkrir leikmenn í liðinu í dag. Það er kjarni af heimamönnum í liðinu sem er ansi sterkt. Það getur myndast býsna góð stemning á Ólafsfirði og það er alltaf erfitt að sækja KF heim, það er klárt mál. Það eru fáir vellir á landinu sem erfiðara er að heimsækja en Ólafsfjarðarvöllur. KF hefur alla burði til að afsanna þessa spá, alveg eins og þeir gerðu í fyrra og árin þar á undan.

Þjálfarinn: Halldór Ingvar Guðmundsson er á leið inn í sitt annað tímabil sem aðalþjálfari KR. Hann tók við liðinu af Slobodan Milisic sem stýrði liðinu í sjö ár. Halldór er á 32. aldursári en hann er uppalinn í KF. Hann lék síðast 16 leiki með liðinu sumarið 2021 í 2. deild en hann lék sem markvörður. Hann er leikjahæsti leikmaður KF frá upphafi en núna er hann þjálfari liðsins. Hann fékk góða reynslu í fyrra sem hann getur tekið með sér inn í komandi tímabil.

Stóra spurningin: Afsanna þeir spánna aftur?
KF er eitt af þeim liðum sem er alltaf einhvern veginn erfitt að spá í fyrirfram. Svo þegar mótið hefst þá er heimavöllurinn sterkur og gildin alltaf þau sömu. Fólk hefur alltaf áhyggjur af þeim fyrir mót en þeir hafa hingað til haldið sér frekar þægilega uppi. Gerist það aftur þetta árið?

Lykilmenn:
Jordan Damachoua: Fyrst ber að nefna Damak, eins og hann er kallaður. Damak, sem er býsna öflugur miðjumaður, kom fyrst til KF 2018 og var út sumarið 2019. Þaðan lá leiðin til Kórdrengja og svo Þórs en hann kom aftur til KF um mitt tímabilið 2022. Hann hefur verið einn af mikilvægustu leikmönnum félagsins þegar hann hefur spilað með KF. Hann er fæddur árið 1991 og hefur leikið 105 KSÍ leiki og skorað 15 mörk. Fyrir KF hefur hann leikið 79 leiki og skorað 9 mörk.

Ljubomir Delic: Þekkir hvern krók og kima á Ólafsfirði eftir að hafa spilað þar frá 2017. Miðjumaðurinn öflugi er nú búsettur í Fjallabyggð og reynst liðinu mikill happafengur frá því hann kom fyrst. Það hefur líka gert það að verkum að hann hefur verið með allt undirbúningstímabilið síðustu árin og hefur þú leikið í Lengjubikarnum og öðrum keppnum sem hann náði ekki fyrstu árin þegar hann var að koma til móts við liðið rétt fyrir Íslandsmótið.

Daniel Kristiansen: Danskur miðjumaður sem hefur leikið með KF frá 2022. Hann getur einnig spilað í vörninni. Hann hefur áður leikið með varaliði Esbjerg og danska liðinu Varde IF. Hann er fæddur árið 1995. „Heimildarmaður síðunnar segir hann vera búsettan í Fjallabyggð og eigi kærustu frá Ólafsfirði og sé þess vegna hingað kominn. Hann er sagður mikill hvalreki fyrir liðið og muni lyfta því upp á hærra plan í sumar," sagði í frétt á fréttavef Fjallabyggðar þegar Kristiansen gekk í raðir KF árið 2022.

Komnir:
Anton Karl Sindrason frá HK
Auðun Gauti Auðunsson frá Haukum
Guðmundur Jón Bergmannsson frá KA
Haukur Helgason frá Þór (á láni)
Jonas Benedikt Schmalbach frá Ítalíu
Þorgeir Örn Tryggvason frá Samherjum

Farnir:
Adil Kouskous í RB
Atli Snær Stefánsson í Árbæ
Dagbjartur Búi Davíðsson í Dalvík/Reyni (var á láni frá KA)
Hákon Leó Hilmarsson til Svíþjóðar
Sito til Spánar

Þjálfarinn segir - Halldór Ingvar Guðmundsson
„Spáin kemur mér ekkert sérstaklega á óvart, við erum með svipaðan hóp og í fyrra og við stefnum á að bæta árangurinn. Erum búnir að spila fínan bolta í vetur og ætlum okkur að fara með það inn í sumarið."

Fyrstu þrír leikir KF:
4. maí, KFG - KF (Samsungvöllurinn)
11. maí, Ægir - KF (GeoSalmo völlurinn)
17. maí, KF - Kormákur/Hvöt (Ólafsfjarðarvöllur)
Athugasemdir