Ásgeir Börkur: Orðinn gamall og stífur
Auglýsing

Börkurinn átti flottan leik í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Börkurinn átti flottan leik í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir heimsótti FH í Krikann í kvöld og sótti eitt stig í fjörugum leik. Ásgeir Börkur, fyrirliði Fylkis, var ánægður með spilamennsku síns liðs og vildi jafnvel fá stigin þrjú.
<i>„Mér fannst við bara nokkuð góðir í dag, vantaði kannski aðeins uppá í seinni hálfleik að halda boltanum betur en mér fannst við alltaf skeinuhættir.\"</i>
Fylkir er búið að spila flottan sóknarbolta oft á köflum í sumar en oft vantað uppá færanýtinguna, Ásgeir hafði þó engar áhyggjur af því.
<i>„Við erum að koma okkur í færi og það er mjög jákvætt, það kemur fyrir að maður klúðri færum en við erum að koma okkur í þau og við förum að skora helling af mörkum.\"</i>
Ásgeir fór meiddur útaf eftir um klukkutíma leik en ætti að vera klár í næsta leik.
<i>\"Ég er bara gamall og stífur og það er búið að vera mikið álag, ég stífnaði aftan í læri og við erum með gott lið og það var góð ákvörðun að fá ferska menn inn.\"</i>